Erlent

Vilhjálmur prins á lausu

Bretar hafa verið mjög hrifnir af Kate og Vilhjálmi.
Bretar hafa verið mjög hrifnir af Kate og Vilhjálmi.

Vilhjálmur erfðaprins Bretlands er hættur með Kate Middleton, kærustu sinni til margra ára.

Breska blaðið The Sun segir að vinir Vilhjálms hafi staðfest sambandsslitin. Talsmaður konungsfjölskyldunnar segir að ekki verði rætt um einkamál prinsins við fjölmiðla.

Þeir sem breska blaðið Sun ræddi við segja ástæðurnar fyrir sambandsslitunum vera mikið álag og herskyldu Vilhjálms.

Vilhjálmur og Kate kynntust þegar þau voru við nám í St. Andrews-háskólanum í Skotlandi. Hann er 24 ára gamall en hún 25.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×