Erlent

Kasparov handtekinn í mótmælum

Kasparov er meðlimur í samtökunum „Hitt Rússland“, regnhlífarsamtökum þeirra sem eru á móti rússneska forsetanum Vladimír Pútín.
Kasparov er meðlimur í samtökunum „Hitt Rússland“, regnhlífarsamtökum þeirra sem eru á móti rússneska forsetanum Vladimír Pútín.

Garry Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák og einn leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, var handtekinn í Moskvu í gær.

Hann var meðal 170 manns sem voru handteknir fyrir að taka þátt í mótmælagöngu á Pushkin-torgi í Moskvu sem yfirvöld höfðu bannað. Mótmælunum var beint að forseta Rússlands, Vladimír Pútín. Kasparov var sleppt úr haldi síðdegis í gær, eftir að hafa verið sektaður um þúsund rúblur fyrir að trufla almannafrið með mótmælunum. Upphæðin jafngildir um 2.500 krónum.

„Rússnesk yfirvöld hafa sýnt sitt rétta andlit," sagði hann á blaðamannafundi fyrir utan dómshús í Moskvu eftir að honum hafði verið sleppt. Hann sagði atburði dagsins hafa sýnt berlega hnignun ríkisstjórnar Pútíns.

Mótmælagangan jók spennu á milli þeirra sem vilja að rússneska ríkisstjórnin hætti að beita aðgerðum gegn pólitískum mótmælendum, og yfirvalda sem segjast munu koma í veg fyrir óleyfilegar samkomur.

Svipuð mótmælaganga, sem á að halda á morgun, hefur einnig verið bönnuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×