Erlent

Náðu árangri með verkfalli

Hundruð hafnarverkamanna í Shenzhen í Kína fóru í verkfall á föstudagskvöld til að krefjast betri kjara. Þeir hættu verkfallsaðgerðum eftir að samist hafði um kauphækkun og rétt þeirra til að stofna verkalýðsfélag, sem verður undir stjórn verkalýðssambandsins í Shenzhen.

Í Kína er bannað að stofna sjálfstæð verkalýðsfélög og forkólfar verkalýðsbaráttu eru iðulega settir í fangelsi og ofsóttir með ýmsu móti.

Shenzhen er mikil uppgangsborg í Suður-Kína, skammt frá Hong Kong.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×