Erlent

Hleypt inn um leið og fé berst

Kim Kye Gwan. Aðalsamningamaður Norður-Kóreu.
Kim Kye Gwan. Aðalsamningamaður Norður-Kóreu. MYND/AP

Aðalsamningamaður Norður-Kóreu, Kim Kye Gwan, sagði Bandaríkjamönnum í gær að alþjóðlegum kjarnorkueftirlitsmönnum yrði hleypt inn í landið um leið og peningasending frá Bandaríkjunum, sem hefur legið á lokuðum bankareikningi, hefði borist til Norður-Kóreu.

Kim sagði einnig ólíklegt að hægt yrði að stöðva brennslu í stærsta kjarnaofni landsins fyrir laugardaginn, eins og um hafði verið samið í febrúar. Til þess sé tíminn orðinn of naumur, en berist féð verði reynt að stöðva vinnsluna eins fljótt og auðið verður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×