Erlent

Árás á Ísland er skynsamlegri en árás á Íran

Bandaríkjamenn myndu endurreisa Reykjavík í fyrri mynd og greiða Íslendingum nærri þrefalda þjóðarframleiðslu í skaðabætur.
Bandaríkjamenn myndu endurreisa Reykjavík í fyrri mynd og greiða Íslendingum nærri þrefalda þjóðarframleiðslu í skaðabætur. MYND/Hari

„Í fyrsta lagi er Ísland fullkomið skotmark. Annaðhvort hittir maður eða maður hittir í sjóinn,“ segir Uwe E. Reinhardt, prófessor í þjóðhagfræði við Princeton-háskóla í New Jersey í Bandaríkjunum.

Hann segir í háðsádeilugrein sinni, sem birt var í skólablaðinu Daily Princetonian í gær, að miklu skynsamlegra væri fyrir Bandaríkjaher að gera árás á Ísland frekar en að ráðast á Íran, eins og nú virðist vera í bígerð. Allir myndu græða á því – líka Íslendingar.

Einn kosturinn er sá hve Ísland er miklu nær Bandaríkjunum en Íran. „Flugmennirnir okkar gætu farið af stað að morgni, sprengt Ísland á hádegi, flogið til Bretlands og farið þar í leikhús eða á krá um kvöldið, náð að morgni í sprengjur sem hinn hjálpfúsi Tony Blair myndi geyma fyrir okkur þar, varpað þeim á Ísland á heimleiðinni og verið komnir til baka fyrir kvöldmat. Þetta er mjög hagkvæm leið til að heyja stríð.“

Sem tylliástæðu gæti leyniþjónustan CIA vísað í heimild um að skuggalegur maður hefði sést „kaupa gula köku af jafn skuggalegri veitingakonu í miðborg Reykjavíkur“.

Bandarískir vopnaframleiðendur myndu græða á þessu og bandarísk fyrirtæki myndu græða á því að reisa Reykjavík úr rústum á ný, en þá með „bandarískum pípulögnum og rafmagnskerfi. Gæti nokkur skynsöm þjóð hafnað slíku örlæti?“ spyr Reinhardt, og bætir því við að Bandaríkin gætu greitt Íslendingum skaðabætur, til dæmis nærri þrefalda þjóðarframleiðslu Íslands, sem er lítil upphæð á mælikvarða bandarískra fjárlaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×