Ekki í mínum bakfirði 5. apríl 2007 02:00 Í kanadísku blaði er sagt að íslensk stjórnvöld bjóði álframleiðendum aðgang að ódýrri orku. MYND/Anton
Íbúakosningin í Hafnarfirði um stækkun álversins í Straumsvík hefur vakið athygli víða utan landsteinanna. Þannig birtir til að mynda kanadíska blaðið Globe and Mail grein um málið undir fyrirsögninni „Not in my backfjord, Icelanders tell Alcan“ („Íslendingar tjá Alcan: Ekki í mínum bakfirði“), sem er orðaleikur út frá enska orðtakinu „ekki í mínum bakgarði“. Í greininni er rakið hvernig 50,3 prósent Hafnfirðinga höfnuðu því að „stjórnvöld flyttu þjóðveg og breyttu deiliskipulagi fyrir áformaða stækkun álversins,“ og sagt að margir hefðu lagst gegn stækkuninni af umhverfisástæðum. Þá er fullyrt að Alcan hafi „fengið vilyrði frá íslensku ríkisstjórninni um aðgang að ódýrri raforku úr vatnsorkuverum til að knýja nýju verksmiðjuna“. Að íslensk stjórnvöld tíðki að „veita erlendum álfyrirtækjum aðgang að ódýrri orku“ er ítrekað síðar í greininni, þar sem sagt er að miklar deilur hafi nú risið meðal Íslendinga um þá stefnu. Í fréttaskeyti AP-fréttastofunnar, sem margir fjölmiðlar birtu, ekki síst vestanhafs, segir að úrslit íbúakosninganna „hafi víðtækar afleiðingar bæði fyrir íslenskt efnahagslíf og fyrir Alcan, annan stærsta álframleiðanda heims, sem hafi gefið til kynna að verksmiðjunni kynni að verða lokað“ ef stækkunin yrði ekki að veruleika.
Mest lesið Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Íranir mótmæla á ný Erlent Metfjöldi gesta tvo daga í röð Innlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Fleiri fréttir Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Sjá meira