Erlent

Tala látinna nálgast hundrað

á Götum höfuðborgarinnar. 
Bændur hafa fagnað rigningunni, því þeir eru langþreyttir á þurrkunum.
á Götum höfuðborgarinnar. Bændur hafa fagnað rigningunni, því þeir eru langþreyttir á þurrkunum. MYND/AFP

Flóð og aurskriður hafa nú lagt 88 manns að velli í Afganistan, samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum.

Margir Afganar fagna þó regninu frekar en hitt, að sögn fréttamanns BBC í Kabúl, því landið var skrælnað eftir nærri tíu ára langa þurrkatíð. Bændur sjá nú fram á blómlega uppskeru í fyrsta skipti í langan tíma.

Í þurrkatíðinni brá fjöldi bænda á það ráð að reisa sér híbýli við árbakka. Því fóru svo margir illa út úr vatnavöxtum síðustu daga.

Ríkisstjórnin hefur reynt að byggja varnargarða við árbakkana, en úrræði hennar takmarkast við leðju og sandpoka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×