Erlent

Ansip fer fyrir nýrri ríkisstjórn

Andrus Ansip
Andrus Ansip

Eistneska þjóðþingið samþykkti í gær fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf þriggja flokka undir forystu Andrus Ansip, leiðtoga Umbótaflokksins sem verið hefur forsætisráðherra síðastliðin tvö ár.

Toomas Hendrik Ilves, forseti Eistlands, skipaði Ansip á þriðjudag forsætisráðherra á ný og fól honum að mynda nýja stjórn eftir þingkosningar sem fram fóru í fyrri mánuði. Ansip hugðist kynna ráðherralista nýrrar ríkisstjórnar sinnar í dag, fimmtudag.

Á mánudag komu Umbótaflokkurinn, IRL-bandalagið og Jafnaðarmannaflokkurinn sér saman um stjórnarsamstarf undir forystu Ansips. Í stjórnarliðinu verða 60 af 101 fulltrúa á þingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×