Erlent

Ísrael hafnar nýju stjórninni

Ismail Haniyeh og Mahmoud Abbas skýrðu frá nýju stjórninni á fimmtudaginn.
Ismail Haniyeh og Mahmoud Abbas skýrðu frá nýju stjórninni á fimmtudaginn. AP

Ísraelsstjórn segir nýju Palestínustjórnina engan veginn standast þær kröfur sem Ísrael, Evrópusambandið og Bandaríkin gera til hennar.

Hamas og Fatah, tvær helstu stjórnmálahreyfingar Palestínumanna, luku á fimmtudaginn við samninga um stjórnarmyndun eftir erfiðar viðræður sem staðið hafa með hléum mánuðum saman og ætla í dag að leita eftir samþykki frá þingi Palestínumanna. Á blaðamannafundi á fimmtudaginn sagðist Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínustjórnar, vonast til þess að nýja stjórnin marki tímamót í sögu Palestínumanna.

Ísraelsk stjórnvöld voru hins vegar fljót að segja nýju stjórnina vera skref aftur á bak og sögðust ætla að safna liði gegn henni á alþjóðavettvangi. Ísraelar gera þá kröfu til stjórnarinnar að hún viðurkenni tilverurétt Ísraels, hafni allri valdbeitingu og virði þá friðarsamninga sem gerðir hafa verið. Vesturlönd vilja bíða þangað til stjórnin er tekin til starfa áður en ákveðið verður hvort hún verður tekin í sátt.

Nimr Hamad, aðstoðarmaður Abbas, sagði nýju stjórnina vera stjórn allra Palestínumanna: „Þegar Ísraelar segjast ekki vilja semja við hana, þá þýðir það að þeir vilja ekki semja við Palestínumenn,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×