Erlent

Jólaskreytingar valda usla í Seattle

Jólatré á flugvellinum í Seattle.
Jólatré á flugvellinum í Seattle. MYND/AP

Flugvallaryfirvöld í bandarísku borginni Seattle tóku niður fjórtán jólatré á flugvallarsvæðinu, eftir að rabbíi í borginni fór fram á að risastórri sjö arma ljósastiku yrði bætt við hátíðaskreytingarnar.

Borgarbúar í Seattle brugðust æfareiðir við og töldu þetta tilraun til að afkristna jólin og útiloka kristna trú úr samfélaginu. Trén voru sett upp aftur í gær eftir að rabbíinn fullvissaði flugvallarstjórnina um að hann myndi ekki krefjast dómsúrskurðar til að þröngva gyðinglegum skreytingum upp á flugvallarstjórnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×