Erlent

Orð gegn orði um aftöku Saddams

Saddam í réttarsal.
Saddam í réttarsal. MYND/AP

Íraski varnarmálaráðherrann bar í morgun til baka orðróm um að Saddam Hussein yrði tekinn af lífi á næstu dögum, eins og bandaríska forsetaembættið sagðist telja. Lögfræðingur Saddams sagði í morgun að að hann hefði kvatt bræður sína í gær á þann hátt að hann búist ekki við að sjá þá á ný

 

Ráðuneytið ræður því hvenær dómnum verður framfylgt. Það segir að Saddam verði ekki hengdur næsta mánuðinn, ekki fyrir 26. janúar. Einnig var því neitað að Bandaríkjamenn væru búnir að afhenda Írökum Saddam til varðhalds og sagði allt enn óbreytt í þeim efnum.

Þá sagði lögfræðingur Saddams einnig að hann hefði fengið skilaboð um að sækja persónulegar föggur Saddams því hann væri kominn í gæslu Íraka, frá Bandaríkjamönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×