Erlent

Kyrrstæður bíll á lestarteinum olli lestarslysi í Ástralíu

MYND/AP
Lögreglan í Ástralíu hefur handtekið vöruflutningabílstjóra sem sagður er hafa valdið lestarslysi þar í landi í gær. Vel á níunda tug farþega voru fluttir á sjúkrahús með minniháttar meiðsl eftir að lest, sem flytur farþega um vinsæla ferðamannastaði í óbyggðum Ástralíu, fór af sporinu er hún skall á vöruflutningabíl sem var kyrrstæður á lestarteinunum. Vöruflutningabílstjórinn og farþegi hans voru einnig flutt á sjúkrahús. Svo virðist sem enginn hafi slasast alvarlega og því hafi hurð skollið nærri hælum. Lestin fer frá Adelaide til Darwin tvisvar í viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×