Erlent

Bush hefur frestað að kynna nýja stefnu í Írak

George Bush, Bandaríkjaforseti, á fundi sínum með Tariq al-Hashemi, varaforseta Íraks, í Washington í gær.
George Bush, Bandaríkjaforseti, á fundi sínum með Tariq al-Hashemi, varaforseta Íraks, í Washington í gær. MYND/AP

George Bush, Bandaríkjaforseti, hefur frestað því að kynna nýja stefnu stjórnar sinnar í Írak þar til eftir áramót. Búist hafi verið við yfirlýsingu frá forsetanum fyrir jól en talsmaður forsetans segir hana ekki tilbúna og ekki að vænta fyrr en á nýju ári.

Bush átti í gær fund með Tariq al-Hashemi, varaforseta Íraks, í Washington. Al-Hashemi er einn leiðtoga Súnnía. Vel fór á með þeim og sagðist varaforsetinn sjá fyrir sér að sættir geti tekist með Sjíum, Súnníum og Kúrdum í Írak. Stuttu fyrir fundinn með varaforsetanum ræddi Bandaríkjaforseti við herstjórnendur í Írak og helstu ráðgjafa sína. Í dag mun hann síðan ráðfæra sig við sérfræðinga í varnarmálaráðuneytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×