Erlent

Fyrrum einræðisherra Eþíópíu sakfelldur fyrir þjóðarmorð

Mengistu Haile Mariam, fyrrverandi einræðisherra í Eþíópíu, var í gær sakfelldur fyrir þjóðarmorð og önnur ódæði á sautján ára valdatíma sínum.  Mengistu steypti Haile Selassie, keisara í Eþíópíu, árið 1974 í blóðugri byltingu og var síðan sjálfum komið frá völdum 1991.

Talið er að hundrað og fimmtíu þúsund manns hafi verið myrtir á meðan Marxistastjórn Mengistus fór með völdin í landinu. Réttarhöldin yfir einræðisherranum hófust 1994. Mengistu var ekki viðstaddur þegar dómur féll í gær enda er hann í útlegð í Simbabwe. Robert Mugabe, forseti Simbabwe hefur heitið Mengistu því að hann verði ekki framseldur ef hann heldur sér frá stjórnmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×