Erlent

Stórbruni í Gamla Stan í Stokkhólmi

Slökkviliðsmenn í Stokkhólmi í Svíþjóð berjast nú við eld sem kom upp í fjölbýlishúsi í Gamla stan, elsta hluta borgarinnar. Um fjörtíu slökkviliðsmenn eru á staðnum.

Eldurinn kom upp á efstu hæð í húsinu, sem stendur við Lilla Nygatan. Þetta er með fínni hverfum borgarinnar og Göran Persson, fyrrverandi forsætisráðherra, hafði íbúð í næsta húsi, meðan hann gegndi því embætti.

Allir íbúar voru fluttir úr nærliggjandi húsum, í varúðarskyni.

Gamla Stan er gamalt hverfi, eins og nafnið bendir til. Götur eru þar þröngar, en í þessu tilfelli virðist það ekki hafa valdið slökkviliðinu erfiðleikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×