Fatah vill ekki vinna með Hamas 26. janúar 2006 22:15 Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna. MYND/AP
Fulltrúar Fatah-fylkingarinnar lýstu því yfir í kvöld að þingmenn hennar ætluðu ekki að taka sæti í ríkisstjórn Hamas-samtakanna. Hamas hlaut hreinan meirihluta í þingkosningum Palestínumanna í gær og vilja þegar hefja viðræður við Fatah og aðra flokka sem fengu sæti á þingi í gær. Hamas-liðar fengu 76 sæti af 132 og Fatah-hreyfingin 43. Búið er að telja 95% atkvæða. Það er því óhætt að segja að friðarhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs séu í töluverðri óvissu þar sem herská samtök sem viðurkenna ekki tilvist Ísraelsríkis hafa nú hreinan meirihluta á palestínska þinginu. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, sagði í kvöld að hann ætlaði þegar að boða til viðræðufundar um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Hann sagði það enn stefnu sína að finna friðsama lausn á deilum Ísraela og Palestínumanna. Bandaríkjamenn hafa þegar lýst áhyggjum sínum og sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag að stefna Bandaríkjastjórnar gagnvart Hamas hefði ekki breyst, þetta væru enn hryðjuverkasamtök í þeirra augum. Bush Bandaríkjaforseti sagði að úrslit kosninganna væru vísbending um hve Palestínumenn væru óánægðir með stöðu mála í dag. Hins vegar myndu Bandaríkjamenn ekki vinna með stjórnmálaafli sem hvetti til þess að Ísraelsríki yrði eytt. Fulltrúar Ísraelsstjórnar lýstu því yfir í kvöld að þeir ætluðu ekki að semja við palestínska ríkisstjórn sem Hamas-samtökin kæmu að.
Erlent Fréttir Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Fleiri fréttir Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Sjá meira