Erlent

Uppreisnarforingi sigrar

Konur á kjörstað í Banda Aceh.
Konur á kjörstað í Banda Aceh. MYND/AP

Fyrrverandi uppreisnarforingi vann yfirburðasigur í fyrstu kosningunum sem fram fóru í Aceh-héraði á Súmötru síðan Indónesíustjórn og aðskilnaðarsinnar skrifuðu undir friðarsamkomulag í fyrra sem batt enda á langt aðskilnaðarstríð.

Samkvæmt spá byggðri á fyrstu tölum fékk Irwandi Yusuf 39 prósent atkvæða í kosningum til héraðsstjóra, en hann sat í fangelsi fyrir landráð árið 2004, þegar flóðbylgjan mikla skall á ströndum Aceh og yfir 140.000 íbúar héraðsins fórust.

Formleg úrslit verða ekki kunngjörð fyrr en 2. janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×