Erlent

Skotárás á drengi vekur reiði

Mohammed Dahlan, þingmaður Fatah, þurrkar tár í útför þriggja drengja sem myrtir voru á Gaza í gær.
Mohammed Dahlan, þingmaður Fatah, þurrkar tár í útför þriggja drengja sem myrtir voru á Gaza í gær. MYND/AP

Byssumenn skutu í gær til bana þrjá unga syni háttsetts öryggismálafulltrúa palestínsku heimastjórnarinnar. Yfir 60 skot dundu á bíl sem drengirnir sátu í á leið í skóla í Gazaborg.

Skotárásin er olía á eld átaka milli stríðandi fylkinga Palestínumanna. Faðir drengjanna átti fyrir tíu árum þátt í að stýra átaki palestínskra yfirvalda gegn liðsmönnum Hamas-samtakanna herskáu. Honum hefur tvisvar áður verið sýnt banatilræði, en hann var ekki í bílnum með sonum sínum í gærmorgun.

Talsmenn Hamas, sem nú halda um stjórnartauma heimastjórnarinnar, sóru af sér að samtökin hefðu komið nærri tilræðinu og hétu því að allt yrði gert til að hafa uppi á ódæðismönnunum.

Spenna hefur farið vaxandi að undanförnu milli liðsmanna Hamas og Fatah-hreyfingarinnar, sem áður var allsráðandi í heimastjórninni en Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, er einn leiðtoga hennar. Á sunnudag hótaði Abbas því að boða á ný til kosninga til palestínska löggjafarþingsins, í kjölfar þess að viðræður um myndun samstjórnar Hamas og Fatah fóru út um þúfur. Hótunin fór illa í Hamas-menn, sem sökuðu Abbas um að leggja á ráðin um valdarán.

Þingmenn Fatah kröfðust þess í gær að Abbas ræki Hamas-stjórnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×