Erlent

Úr stofufangelsi á sjúkrahúsið

Líf Pinochets hangir á bláþræði en kaþólska kirkjan hefur veitt honum syndaaflausn með síðustu smurningu.
Líf Pinochets hangir á bláþræði en kaþólska kirkjan hefur veitt honum syndaaflausn með síðustu smurningu. MYND/AFP

Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, fékk hjartaáfall í gærmorgun og var í skyndi fluttur á sjúkrahús þar sem tvísýnt var um líf hans.

Hann gekkst undir hjartaþræðingu til þess að víkka út þröngar æðar við hjartað og átti í framhaldi af því að gangast undir opna skurðaðgerð í þeirri von að bjarga mætti lífi hans.

Kaþólskur prestur veitti honum hinstu smurningu að kaþólskum sið, en Pinochet var að mestu með meðvitund í gær.

Pinochet, sem er orðinn 91 árs, hafði verið í stofufangelsi frá því í síðustu viku þegar honum voru birtar ákærur vegna lífláts tveggja lífvarða Salvadors Allende, forseta Chile sem Pinochet og herlið hans steypti af stóli árið 1973.

Pinochet ríkti harðri hendi í Chile árin 1973 til 1990 og hefur verið sakaður um margvísleg mannréttindabrot og hrottaskap.

Heilsu hans hefur hrakað á síðustu árum. Hann hefur notað gangráð árum saman, hefur fengið heilablóðfall nokkrum sinnum og greindist með væga heilabilun.

Bágt heilsufar hans hefur orðið til þess að fallið hefur verið frá réttarhöldum, bæði í Bretlandi og í Chile, vegna mannréttindabrota í stjórnartíð hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×