Erlent

Hefur áfrýjað dauðadómnum

Saddam Husseinþ Önnur réttarhöld yfir Saddam héldu áfram í gær.
Saddam Husseinþ Önnur réttarhöld yfir Saddam héldu áfram í gær.

 Lögfræðingar Saddams Husseins áfrýjuðu í gær dauðadómnum, sem kveðinn var upp yfir honum í byrjun nóvember.Jafnframt sökuðu lögfræðingarnir dómstólinn um að tefja fyrir framgangi málsins, þar sem þeir hefðu ekki fengið afrit af dómsúrskurðinum fyrr en 23. nóvember.

Úrskurðurinn kemur nú til kasta áfrýjunardómstóls, sem ekki þarf að skila niðurstöðu fyrir ákveðinn tíma, en dauðadómi þarf að fullnægja ekki síðar en þrjátíu dögum eftir að áfrýjunardómstóll skilar málinu frá sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×