Óttast að 600 manns hafi látist í skriðum 3. desember 2006 04:45 Aurskriðurnar færðu fjölmörg hús við rætur eldfjallsins Mayan nær algjörlega í kaf. Aðeins húsþökin standa nú upp úr sandinum. MYND/AP
Óttast er að yfir 600 manns hafi farist í miklum aurskriðum í kjölfar fellibyls á Filippseyjum síðustu daga. Í gær höfðu á fjórða hundrað lík fundist og ríflega 300 manns var enn saknað. Litlar líkur voru taldar á því að nokkur ætti eftir að finnast á lífi. Hafist var handa við að jarðsetja fórnarlömb hamfaranna þegar í gær vegna þess hversu ört líkin rotnuðu í hitanum. Þykk, svört eðja sem flæddi um allt gerði björgunarmönnum erfitt fyrir, en talið er að þeir hafi ekki fundið neinn á lífi í eðjunni frá því á fimmtudag þegar fellibylurinn Durian gekk á land. Vindhraði hans fór í rúma sjötíu metra á sekúndu þegar verst lét. Albay-fylki á suðurhluta Luzon-eyjunnar varð verst úti og þar höfðu tæplega 300 fundist látnir í gær. Skriðurnar féllu flestar úr Mayon, sem er eitt virkasta eldfjall landsins. Aska og stórgrýti hafði safnast saman í hlíðum fjallsins undanfarið í kjölfar óvenju mikillar virkni og bylurinn sópaði því öllu niður á þorpin við rætur fjallsins. Þungt hljóð var í fylkisstjóranum Fernando Gonzales í gær. „Allir hlutar fylkisins hafa orðið storminum að bráð. Hér er algjör eyðilegging. Aldrei áður í sögunni höfum við orðið vitni að öðru eins vatnsmagni. Nánast hvert einasta byggt svæði er á kafi." Hús nærri bænum Padang, sem er í um tíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborg fylkisins, fóru nærri algerlega á kaf í eðju og stóðu aðeins þökin upp úr. Mörg lík bárust á haf út og skolaði síðan á land í nálægum bæjum. Sums staðar fundust einungis leifar af hinum látnu. Hinn 21 árs Silangan Santander var við jarðarför Larry bróður síns í gær. Aðeins fundust fætur hans og neðri hluti líkama. Ófrísk ekkja hans treysti sér ekki til að mæta við jarðarförina. „Öll húsin í hverfinu okkar voru horfin," sagði hún og bætti því við að bróður hennar væri einnig saknað. „Þar er ekkert nema sandur, grjót og vatn." Kanadamenn hafa veitt rúmum sextíu milljónum til hjálparstarfsins og Japanar tólf milljónum. Lítið sést af þessu húsi annað en þakið eitt. Þessir íbúar skoðuðu í gær hina gífurlegu eyðileggingu.MYND/AP .
Mest lesið Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Innlent Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Erlent Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Innlent Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Innlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Innlent Fleiri fréttir Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Sjá meira