Ásakanir fylkinga ganga á báða bóga 14. desember 2006 01:30 Fatah-liðar mótmæltu í gær morðum á þremur sonum háttsetts manns í fréttablaðsamtökunum. MYND/AP
Átök tveggja helstu hópa Palestínumanna, Hamas og Fatah, hafa magnast síðustu daga með morðum og ásökunum á báða bóga. Á mánudaginn voru þrjú ung börn skotin til bana, en faðir þeirra er tengdur Hamas-samtökunum. Í gær var síðan einn af yfirmönnum í Hamas-samtökunum, Bassam al-Fara, drepinn í Kan Júnis á Gaza-svæðinu. Hamas sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fullyrt er að „dauðasveit“ á vegum Fatah-samtanna beri ábyrgð á barnamorðunum á mánudag. „Hamas mun ekki gleyma blóði meðlima sinna,“ sagði Fawsi Barhoum, talsmaður Hamas. Tafwik Abu Khoussa, talsmaður Fatah, hafnar hins vegar þeim ásökunum og segir að Fatah fordæmi „allar stjórnleysisathafnir, hver svo sem stendur að baki þeim, og við skorum á bræður okkar í Hamas að láta af ásökunum áður en rannsókn fer fram“. Hamas náði þingmeirihluta í kosningum fyrr á árinu en Fatah, sem áður voru undir forystu Jassers Arafat, hefur eftir sem áður ráðið yfir forsetaembættinu, þar sem forseti Palestínumanna er Fatah-maðurinn Mahmoud Abbas. Abbas forseti hafði reynt að ná sáttum með því að bjóða Hamas að standa að samsteypustjórn þar sem helstu ráðherrar yrðu óháðir embættismenn. Þegar ekkert gekk að semja um það hótaði Abbas því að flýta kosningum, en í kjölfarið hafa þessi blóðugu átök brotist út milli hópanna tveggja.
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Fleiri fréttir Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Sjá meira