Erlent

Ásakanir fylkinga ganga á báða bóga

Fatah-liðar mótmæltu í gær morðum á þremur sonum háttsetts manns í fréttablaðsamtökunum.
Fatah-liðar mótmæltu í gær morðum á þremur sonum háttsetts manns í fréttablaðsamtökunum. MYND/AP

Átök tveggja helstu hópa Palestínumanna, Hamas og Fatah, hafa magnast síðustu daga með morðum og ásökunum á báða bóga.

Á mánudaginn voru þrjú ung börn skotin til bana, en faðir þeirra er tengdur Hamas-samtökunum. Í gær var síðan einn af yfirmönnum í Hamas-samtökunum, Bassam al-Fara, drepinn í Kan Júnis á Gaza-svæðinu.

Hamas sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fullyrt er að „dauðasveit“ á vegum Fatah-samtanna beri ábyrgð á barnamorðunum á mánudag. „Hamas mun ekki gleyma blóði meðlima sinna,“ sagði Fawsi Barhoum, talsmaður Hamas.

Tafwik Abu Khoussa, talsmaður Fatah, hafnar hins vegar þeim ásökunum og segir að Fatah fordæmi „allar stjórnleysisathafnir, hver svo sem stendur að baki þeim, og við skorum á bræður okkar í Hamas að láta af ásökunum áður en rannsókn fer fram“.

Hamas náði þingmeirihluta í kosningum fyrr á árinu en Fatah, sem áður voru undir forystu Jassers Arafat, hefur eftir sem áður ráðið yfir forsetaembættinu, þar sem forseti Palestínumanna er Fatah-maðurinn Mahmoud Abbas.

Abbas forseti hafði reynt að ná sáttum með því að bjóða Hamas að standa að samsteypustjórn þar sem helstu ráðherrar yrðu óháðir embættismenn. Þegar ekkert gekk að semja um það hótaði Abbas því að flýta kosningum, en í kjölfarið hafa þessi blóðugu átök brotist út milli hópanna tveggja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×