Forstjóri Yukos undir grun 29. desember 2006 02:00 Leonid Nevzlin rússneskir saksóknarar segja fyrrum forstjóra Yukos grunaðan um morð á fyrrum KGB njósnara. MYND/AP
Rússneskir saksóknarar hafa nafngreint fyrrverandi forstjóra olíurisans Yukos, Leonid Nevzlin, sem einn þeirra sem liggja undir grun í tengslum við morðið á fyrrverandi KGB njósnara, Alexander Litvinenko. Litvinenko lést úr pólón-210 geislaeitrun í Bretlandi í nóvember. Að sögn skrifstofu ríkissaksóknara eru Nevzlin og aðrir eigendur Yukos grunaðir um að hafa fyrirskipað morðið, sem og að eitra fyrir öðrum fyrrum rússneskum leyniþjónustumanni, Dímítrí Kovtun. Nevzlin flúði Rússland árið 2003 eftir gjaldþrot Yukos í kjölfar herferðar stjórnvalda gegn fyrirtækinu. Hann fór til Ísraels þar sem hann nú býr í útlegð. Í síðasta mánuði sagði Nevzlin blaðamönnum AP-fréttastofunnar að Litvinenko hefði látið sig hafa skjal tengt Yukos og sagðist telja að morðið væri tengt rannsókn hans á gjaldþroti fyrirtækisins. Ættingjar og félagar Litvinenkos segja grun saksóknaranna á engu byggðan, því þeir telja að rússnesk yfirvöld standi að baki morðinu. Á dánarbeði sínum sakaði Litvinenko sjálfur Vladimír Pútín Rússlandsforseta um að bera ábyrgð á veikindum sínum.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Fleiri fréttir Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Sjá meira