Erlent

Erlendum fyrirtækjum fjölgar í Danmörku

Á Strikinu í Kaupmannahöfn
Á Strikinu í Kaupmannahöfn

Erlendum fyrirtækjum í Danmörku fjölgar um fimm á dag, flest þeirra hafa þýska eða pólska eigendur. Fjöldinn hefur rúmlega tvöfaldast á einu og hálfu ári. Þetta kemur fram í samantekt danskra skattayfirvalda fyrir dagblaðið Jótlandspóstinn. Tölurnar sýna að meirihluti fyrirtækjanna vinnur á sviði byggingarverktaka.

Til dæmis eru 529 af 611 pólskum fyrirtækjum sem skráð eru hjá danska skattstjóranum í byggingariðnaði og sama má segja um 62 af 77 fyrirtækjum frá Litháen.

Danski byggingariðnaðurinn hefur skapað 16 þúsund störf á undanförnum árum, þar af eru 8.000 erlendir ríkisborgarar í þessum nýju störfum í byggingariðnaðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×