Samvinnan endurskoðuð 28. desember 2006 05:00 Þessar írönsku skólastúlkur styðja stefnu ríkisstjórnar sinnar í kjarnorkumálum. MYND/AP
Íranska þingið samþykkti í gær að endurskoða tengsl sín við Alþjóðakjarnorkumálastofnun Sameinuðu þjóðanna, IAEA. Óttast stjórnmálaskýrendur að þetta þýði að írönsk stjórnvöld muni þá minnka til muna samvinnu við stofnunina. Ákvörðun þingsins kom fjórum dögum eftir að öryggisráð SÞ samþykkti einróma að beita skyldi Írana efnahagslegum refsiaðgerðum fyrir að neita að hætta að auðga úran. Vestræn ríki með Bandaríkin í fararbroddi, telja Írana ætla sér að vinna kjarnorkuvopn úr auðgaða úraninu, en Íranar hafa hins vegar staðfastlega haldið fram að framleiðsla þeirra sé eingöngu í friðsamlegum tilgangi og að hún verði notuð til að búa til rafmagn. Jafnframt sjá Íranar kjarnorkuáætlun sína sem tákn um tæknilegar framfarir landsins, enda er samstaða meðal allra stjórnmálaflokka landsins og flestra landsmanna um að halda henni til þrautar. Refsiaðgerðir öryggisráðsins felast í banni við því að tækniþekking og tæki sem nota má við kjarnorkuframleiðslu verði keypt frá eða selt til Írans. Jafnframt var fé tíu íranskra fyrirtækja og tólf Írana fryst í erlendum bönkum. Háttsettir klerkar hafa ítrekað hvatt stjórnina til að skera á öll bönd við IAEA, ef öryggisráðið myndi ákveða að beita refsiaðgerðum, líkt og nú hefur verið gert.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Fleiri fréttir Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Sjá meira