Lægði öldurnar í bandarísku samfélagi 28. desember 2006 04:30 Gerald og Betty ford Árið 1996 var þeim hjónum ákaft fagnað á þingi Repúblikanaflokksins. MYND/AP
Gerald Ford tók við forsetaembætti Bandaríkjanna eftir að Richard Nixon hraktist frá völdum vegna Watergate-málsins og gegndi lykilhlutverki við að koma á sáttum í bandarísku þjóðfélagi á ný eftir allt umrótið í kringum hinn umdeilda forvera sinn. Ford þótti hins vegar gjörólíkur Nixon, öfgalaus bæði í skoðunum og verkum og blátt áfram í framkomu sinni. Fréttaskýrendur segja hann hafa verið nákvæmlega það sem bandaríska þjóðin þurfti á að halda til þess að ná sér aftur á strik bæði eftir áfallið sem Nixon-hneykslið skildi eftir sig, en ekki síður eftir Víetnamstríðið, sem klofið hafði þjóðina í tvær andstæðar fylkingar. Ford var eini forseti Bandaríkjanna sem hvorki var kosinn forseti né varaforseti Bandaríkjanna, en hann hafði gegnt forsetaembættinu í nærri tvö og hálft ár og þar á undan verið varaforseti. Nixon skipaði hann varaforseta sinn í október árið 1973 eftir að Spiro Agnew þurfti að segja af sér vegna skattsvika, sem hann varð uppvís að og hlaut dóm fyrir. Þegar Nixon neyddist síðan sjálfur til að segja af sér árið eftir settist Ford í forsetastólinn, og sagt hefur verið að hann hafi breytt embættinu meira en það breytti honum. Ford þótti ekki atkvæðamikill á valdatíð sinni, en um hann ríkti almenn sátt í Bandaríkjunum. Eitt umdeildasta verk Fords var hins vegar að veita Nixon náðun aðeins tæpum mánuði eftir forsetaskiptin, sem varð til þess að aldrei var hægt að ákæra Nixon fyrir neina glæpi í tengslum við Watergate-málið. Almennt er talið að þetta embættisverk Fords hafi jafnframt orðið til þess að hann tapaði í forsetakosningum árið 1976, þegar demókratinn Jimmy Carter vann sigur. Ford var 93 ára gamall þegar hann lést á heimili sínu í Kaliforníu á þriðjudaginn og hafði þá lifað lengur en nokkur annar forseti Bandaríkjanna. Eiginkona hans, Betty Ford, sendi frá sér tilkynningu um andlát hans seint á þriðjudagskvöldið. George W. Bush, núverandi Bandaríkjaforseti, fór lofsamlegum orðum um Ford í gær eftir að fréttir bárust af andláti hans. „Bandaríska þjóðin mun ávallt dást að skyldurækni Geralds Ford, persónuleika hans og hve virðulega hann leysti störf sín af hendi," sagði Bush í yfirlýsingu í gær. Ford tók við forsetaembættinu eftir að Nixon hraktist frá völdum. Þessi mynd er tekin árið 1968 þegar Repúblikanaflokkurinn hafði valið Nixon til að verða forsetaframbjóðandi sinn, en Ford var þá leiðtogi flokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings.MYND/AP .
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Mennirnir enn í haldi lögreglu Innlent Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Innlent Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Innlent Fleiri fréttir Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Sjá meira