Erlent

Snorri hafði rangt fyrir sér

Norskur fornleifafræðingur hefur sýnt fram á að Snorri hafi greint rangt frá gröf Ólafs helga.
Norskur fornleifafræðingur hefur sýnt fram á að Snorri hafi greint rangt frá gröf Ólafs helga.

Snorri Sturluson hafði rangt fyrir sér. Niðaróskirkjan var ekki byggð yfir upprunalega gröf Ólafs helga Tryggvasonar og því verður að endurskrifa sögu dómkirkjunnar. Þetta er niðurstaða fornleifafræðingsins Øystein Ekroll sem í þrjú ár hefur grúskað í ritum Snorra, segir í frétt Aftenposten í gær.

„Ég hef rannsakað gamlar „staðreyndir“ í ljósi fornleifafunda sem uppgötvast hafa á síðustu tíu árunum, sem hefur gert mér kleift að komast að nýjum niðurstöðum,“ segir Ekroll, sem mun birta niðurstöður rannsóknar sinnar í þessari viku. „Margar þessara „staðreynda“ reynast vera rangar. Dómkirkjan og háaltari kirkjunnar var aldrei byggt yfir gröf Ólafs helga, líkt og stendur í Snorra.“

Árið 1230 hagræddi Snorri vísvitandi staðreyndum og ritaði að þáverandi eina dómkirkja Noregs væri byggð á gröf Ólafs helga. Sagan segir að Ólafur helgi hafi verið grafinn á sandmel nokkrum, en Niðaróskirkjan stendur á leirgrunni. Fornleifarannsóknir hafa jafnframt leitt í ljós að kirkjan hafi verið reist nærri Niðarnes-bænum.

„Þeir sem vildu grafa kistu Ólafs með leynd, völdu varla, á ljósri þrándheimskri sumarnótt, hæsta og sýnilegasta punktinn á svæðinu.... Það getur ekki verið að kista látins konungs hafi verið grafin í miðju slíku svæði, þar sem byggingar stóðu og mikill erill manna,“ segir Ekroll. „Það er mun líklegra að upprunalega gröfin hafi verið við Niðará.“

Ekroll telur líklegt að valdamenn innan hirðarinnar eða kirkjunnar hafi fyrirskipað Snorra að falsa staðreyndir, líklega til að hækka kirkjuna í Niðarósi í sessi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×