Erlent

Frægir Danir velji viðtakendur

Frægir Danir verða látnir velja þau Afríkulönd sem munu hljóta þróunarhjálp frá Danmörku frá og með miðjum desember. Tilgangurinn er sá að koma í veg fyrir að eingöngu sérfræðingar séu fulltrúar þróunarhjálpar Danmerkur, kom fram á fréttavef danska blaðsins Politiken.

Talsmenn hjálparstofnana segja ákvörðunina afar ósmekklega, en þróunarmálaráðherra Danmerkur, Ulla Tørnæs, segist ekki skilja gagnrýni þeirra. „Danskar hjálparstofnanir nýta sjálfar frægt fólk til að vekja athygli á starfi sínu,“ sagði Tørnæs.


Tengdar fréttir

Tuttugu hópnauðganir á árinu

Hópnauðgunum á Íslandi hefur fjölgað úr átján í tutt-ugu milli ára, þegar enn er rúmur mánuður til ársloka. Einnig hafa fleiri nauðgunarmál komið inn á borð neyðarmóttöku Landspítalans en í fyrra. Í lok þessa mánaðar höfðu 134 mál borist, en þau voru 130 alls í fyrra. Af þessum 134 málum hafa einungis 43 mál verið kærð til lögreglu, eða 32 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×