Erlent

Ísinn bráðnar örar en áður

Allur ís á norðurpólnum gæti horfið mjög hratt næstu áratugina, einkum á sumrin, að mati hóps bandarískra vísindamanna, sem kynntu niðurstöður rannsókna sinna á fundi Samtaka bandarískra jarðeðlisfræðinga nýverið.

Íshellan vex ekki jafn hratt og áður á haustin og í síðasta mánuði var hafísinn tveimur milljón ferkílómetrum minni en hann hefur verið að meðaltali í nóvember þegar mælingar eru skoðaðar aftur í tímann.

„Þetta svæði er jafnstórt Alaska,“ sagði Mark Serreze, sérfræðingur í hafís við Colorado-háskólann, í samtali við fréttamann breska ríkisútvarpsins, BBC. „Við náum okkur ekki vel aftur á strik á haustin lengur. Ísinn gæti verið farinn að fylgja skilyrðum, verður kannski farinn að sýna mjög öra minnkun í fyrirsjáanlegri framtíð.“

Hafísinn varð minnstur í ár þann 14. september og hefur hann eingöngu þrisvar áður mælst minni í 29 ára sögu mælinga íssins með aðstoð gervihnatta. Minnstur varð hann í fyrra.

Áhyggjur Serreze endurspegluðust í nýju tölvulíkani sem vísindamenn Loftslagsrannsóknarstöðvar Bandaríkjanna og McGill og Washington háskólanna kynntu á fundinum, sem sýnir að allur hafís á norðurpólnum gæti bráðnað sumarið árið 2040.

Vísindamennirnir sýndu fram á að því meira sem bráðnar af ísnum, því örar bráðnar hann.

„Þegar ísinn hopar, flytur hafið meiri hita til norðurheimskautsins og íslaust vatnið drekkur í sig meira sólarljós, sem aftur eykur hraða hlýnunar og leiðir til frekara ístaps,“ sagði Markia Holland, íssérfræðingur.

Að lokum kemst þetta ferli á stig þaðan sem ekki verður aftur snúið, og þarf ekki meiri háttar atburð til heldur eingöngu eitt ár sem er hlýrra en önnur, að sögn Hollands. Eftir það, verður bráðnunin afar ör.

Þessar breytingar munu hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir allt lífríki þessa svæðis, ekki síst fyrir ísbirni sem veiða sér til matar á og í sjónum umhverfis. Jafnframt myndu þær hafa gríðarleg áhrif á mennska íbúa svæðisins, sem myndu þar með tapa aldagömlum hefðum. Aftur á móti gæti ístapið skapað ný atvinnutækifæri fyrir þetta fólk, því hægt verður að sigla yfir norðurpólinn.

Auk þess má gera ráð fyrir frekari loftlagsbreytingum um heim allan, þegar jörðin fer að drekka í sig meiri hita frá sólinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×