Erlent

Karzai ásakar Pakistana

Hamid Karzai, Forseti Afganistans talar í Kandahar í gær.
Hamid Karzai, Forseti Afganistans talar í Kandahar í gær. MYND/AP

Átta menn biðu bana er sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp við innganginn að skrifstofum héraðsstjóra Helmand-héraðs í sunnanverðu Afganistan í gær. Hamid Karzai forseti fordæmdi tilræðið og sakaði grannríkið Pakistan um að vera „forsprakka talíbana“.

Flestir hinna látnu voru öryggisverðir, en einn var sýslumaður. Héraðsstjórinn meiddist ekki. Tilræðið var nýjasta árásin sem skæruliðar talíbana efna til gegn háttsettum fulltrúum stjórnar Karzais.

Þá féll breskur hermaður í skotárás annars staðar í Helmand í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×