Erlent

Hvít-Rússi heiðraður

Alexander Milinkevich hlaut mannréttindaverðlaun ESB í gær.
Alexander Milinkevich hlaut mannréttindaverðlaun ESB í gær. MYND/AP

Leiðtogi stjórnarandstöðu Hvíta-Rússlands, Alexander Milinkevits, tók í gær við mannréttindaverðlaunum Evrópusambandsins við hátíðlega athöfn í Frakklandi. Hlaut hann heiðurinn vegna baráttu sinnar fyrir lýðræði í heimalandi sínu.

Milinkevits tapaði forsetakosningum í mars, en hann hafði boðið sig fram gegn Alexander Lukasjenkó, forseta.

Verðlaunin eru nefnd eftir Andrei Sakharov, einum frægasta andófsmanni Sovétríkjanna, og eru afhent einu sinni á ári til einstaklinga eða samtaka sem talin eru hafa unnið ötullega að mannréttindum, alþjóðlegu samstarfi eða lýðræði og laganna rétti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×