Erlent

Sögð hafa setið fáklædd fyrir hjá listmálara

Cherie Booth Blair.
Forsætisráðherrafrúin er sögð hafa setið fyrir nakin á sínum yngri árum.
Cherie Booth Blair. Forsætisráðherrafrúin er sögð hafa setið fyrir nakin á sínum yngri árum.

Bretar eru afar uppteknir þessa dagana af mynd sem sögð er vera af forsætisráðherrafrúnni Cherie Blair í adamsklæðunum, en málverkið hefur ekki verið til sýnis í rúma tvo áratugi. Frú Blair er sögð hafa setið nakin fyrir hjá málaranum Euan Uglow á námsárum sínum, en hann lauk aldrei við málverkið.

Myndin hefur verið falin í kjallara listagallerís nokkurs í London síðan í byrjun níunda áratugarins, en að ósk málarans hefur hún ekki verið sýnd síðan fór að bera á Tony í breskum stjórnmálum. Umboðsmaður listamannsins staðfesti nýverið við The Times að konan á þessu umdeilda, óræða málverki væri Cherie Blair.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×