Skotárás á drengi vekur reiði 12. desember 2006 05:45 Mohammed Dahlan, þingmaður Fatah, þurrkar tár í útför þriggja drengja sem myrtir voru á Gaza í gær. MYND/AP
Byssumenn skutu í gær til bana þrjá unga syni háttsetts öryggismálafulltrúa palestínsku heimastjórnarinnar. Yfir 60 skot dundu á bíl sem drengirnir sátu í á leið í skóla í Gazaborg. Skotárásin er olía á eld átaka milli stríðandi fylkinga Palestínumanna. Faðir drengjanna átti fyrir tíu árum þátt í að stýra átaki palestínskra yfirvalda gegn liðsmönnum Hamas-samtakanna herskáu. Honum hefur tvisvar áður verið sýnt banatilræði, en hann var ekki í bílnum með sonum sínum í gærmorgun. Talsmenn Hamas, sem nú halda um stjórnartauma heimastjórnarinnar, sóru af sér að samtökin hefðu komið nærri tilræðinu og hétu því að allt yrði gert til að hafa uppi á ódæðismönnunum. Spenna hefur farið vaxandi að undanförnu milli liðsmanna Hamas og Fatah-hreyfingarinnar, sem áður var allsráðandi í heimastjórninni en Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, er einn leiðtoga hennar. Á sunnudag hótaði Abbas því að boða á ný til kosninga til palestínska löggjafarþingsins, í kjölfar þess að viðræður um myndun samstjórnar Hamas og Fatah fóru út um þúfur. Hótunin fór illa í Hamas-menn, sem sökuðu Abbas um að leggja á ráðin um valdarán. Þingmenn Fatah kröfðust þess í gær að Abbas ræki Hamas-stjórnina.
Mest lesið Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Innlent Fleiri fréttir FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Sjá meira