Erlent

Ummerki um vatn fundin á Mars

Nýjar rannsóknir vísindamanna NASA benda til þess að þessi gígur geti hafa veðrast svona vegna vatnsflæðis. Myndin var tekin í október síðastliðnum.
Nýjar rannsóknir vísindamanna NASA benda til þess að þessi gígur geti hafa veðrast svona vegna vatnsflæðis. Myndin var tekin í október síðastliðnum. MYND/AP

Vísindamenn NASA segjast hafa fundið ummerki sem gætu verið eftir rennandi vatn á Mars. Ef þetta reynist rétt eru miklar líkur taldar á því að líf finnist, hafi fundist eða geti þrifist á Mars.

Á miðvikudag kynntu vísindamenn NASA að nýjar rannsóknir þeirra af ljósmyndum, sem teknar voru af yfirborði reikistjörnunnar Mars, þættu benda til þess að vatn hafi runnið þar á undanförnum árum. Niðurstöðurnar, sem fjallað er ýtarlega um í nýjasta töluhefti vísindatímaritsins Science, eru ákaflega „sannfærandi", kom fram í máli vísindamannanna og eru þeir sem leita eftir lífi á öðrum hnöttum afar spenntir fyrir rannsókninni.

„Við erum að uppgötva að meira á sér stað á Mars en við áður héldum og að miðbreiddargráðusvæðið virðist vera þar sem allt gerist," hefur AP fréttastofan eftir Phil Christensen, prófessor í háskólanum í Arizona, en Christensen tók ekki þátt í rannsókn NASA.

Ljósmyndir teknar
Samanburður. Þessar tvær myndir, sem teknar voru af sama svæði á Mars með sjö ára millibili, sýna breytingar á yfirborði plánetunnar sem vísindamenn NASA telja að sanni tilvist fljótandi vatns.MYND/AP

Mars myndaðist fyrir meira en 4,5 milljörðum árum síðan og telja vísindamenn að fyrstu 1,5 til 2,5 milljarða árin hafi verið hlýtt og rakt á plánetunni. Þar ríkir nú ákaflega þurrt og kalt loftslag, og ekki hafa fyrr fundist ummerki um fljótandi vatn þar. Vatnið getur ekki verið lengi í fljótandi formi á Mars vegna kuldans sem ríkir þar, en vísindamennirnir leiða að því getgátum að það geti sprautast út á yfirborðið líkt og í hverum.

Þó ekkert vatn sjáist beinlínis á myndum vísindamannanna, þá eru greinilegar nýlegar breytingar á yfirborði plánetunnar, sem taldar eru vera eftir vatn sem hefur spýst út í gegnum jarðskorpu plán-etunnar.

Rannsóknin
Vísindamennirnir Michael Meyer, Kenneth Edgett, Micael Malin og Philip Christensen ræddu á blaðamannafundi á miðvikudag um niðurstöður rannsókna þeirra um að hugsanlega finnist vatn á Mars.MYND/AP

Rannsóknin hófst þegar nokkrir vísindamenn tóku eftir tugþúsundum gilskorninga á myndum sem geimskip NASA á sporbaug umhverfis plánetuna, Mars Global Surveyor eða MGS, hafði tekið. Þeir töldu gilin vera tiltölulega ný og sýndust þau líkjast mjög skurðum sem vatn myndar þegar það brýtur sér leið niður kletta og brattar gýghlíðar á jörðinni.

Vísindamenn við Malin-geimrannsóknastofuna í San Diego, sem starfrækja myndavélina um borð í MGS, ákváðu því að láta taka aftur ótal myndir í leit að frekari breytingum.

Tveir gilskorningar á suðurhluta plánetunnar, sem voru upphaflega myndaðir árin 1999 og 2001 og svo aftur árin 2004 og 2005, sýndu breytingar sem virtust líkjast þeim sem fljótandi vatn myndar.

Í báðum tilfellum fundu vísindamennirnir nokkur hundruð metra langt ljósleitt botnfall í giljunum sem ekki var sýnilegt á upphaflegu myndnum. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að botnfallið - sem hugsanlega er aur, salt eða ís - hafi orðið eftir þegar vatn rann nýverið eftir farvegunum.

Koltvísýringur
Vatnsleki? Vísindamenn NASA telja líklegt að hér sé um veðrun af völdum vatns að ræða.MYND/AP

Kenneth Edgett, vísindamaður við Malin-stöðina, telur fullvíst að ryk hefði skilið eftir dökkt botnfall, á meðan vatn gæti skilið eftir ljósa bletti í landslaginu.

En vísindamenn eru þó ekki á eitt sáttir um hvort um vatn sé að ræða.

„Ekkert á þessum myndum, sama hversu flottar þær eru, sannar að framstreymið hafi verið blautt eða að það hafi verið neitt meira spennandi en sand- og rykskriður," sagði Allan Treiman, jarðfræðingur við Tungl- og plán-etustofnunina í Houston, í tölvupósti við fréttamenn AP fréttastofunnar.

Aðrir telja líklegra að um fljótandi koltvísýring hafi verið að ræða.

Ein ástæðan fyrir þeim röksemdum er sú að tölvulíkön af jarðskorpu Mars sýna að vatn getur eingöngu fundist þar á margra kílómetra dýpi. Fljótandi koltvísýringur getur hins vegar fundist mun nær yfirborði plánetunnar, þar sem hitastigið getur verið allt niður í 107 stiga frost.

Oded Aharonson, aðstoðarprófessor í stjörnufræði við Tæknistofnun Kaliforníu (Caltech) sagði í samtali við fréttamenn AP að á meðan hugmyndir um vatn á Mars væru „sannfærandi" þá væru þær bara ein af mörgum hugsanlegum skýringum og frekari rannsókna væri þörf áður en hægt væri að útiloka að ekki væri bara um rykflæði að ræða.

Líf á Mars?

Þó fæstir búist lengur við því að litlir grænir karlar byggi plánetuna, þá renna þessar niðurstöður óneitanlega stoðum undir þá kenningu að lifandi verur geti þrifist á Mars, en almennt er talið að vatn og trygg hitauppspretta sé undirstaða alls lífs í heiminum.

Því má álykta að ef vatn er að finna undir yfirborði plánetunnar, þá getur það væntanlega hýst örverur eða bakteríur.

Vísindamenn telja að til forna hafi vatnstjarnir verið að finna um alla plánetuna og á norðurpól Mars er enn í dag að finna ummerki um ís. Geimfarajepplingar NASA, sem lentu á plánetunni árið 2004, sendu á sínum tíma sterkar vísbendingar um að fljótandi vatn hefði fundist á yfirborðinu fyrr á öldum og byggðu vísindamennirnir niðurstöður sínar á athugunum á breytingum í gömlu bergi.

Nú eru vísindamenn um heim allan sammála um að nauðsynlegt sé að ákvarða hvað það var sem olli breytingunum sem sjá má á myndunum, svo hægt sé að komast að frekari niðurstöðum um hvort líf geti þrifist á Mars.

„Þetta undirstrikar mikilvægi þess að leita að lífi á Mars, hvort sem er núna eða forðum," sagði Bruce Jakosky, geimlíffræðingur við Colorado-háskólann í Boulder, sem ekki tók þátt í rannsókn NASA. „Þetta er enn ein ástæðan til þess að telja að líf geti fundist þar."

Týnt geimskip

Þó gæti reynst erfiðara og kostnaðarsamara að halda þeim rannsóknum áfram en gert hafði verið ráð fyrir því starfsfólk NASA missti sambandið við geimskipið MGS í síðasta mánuði. Allar tilraunir til að finna geimskipið, sem hefur tekið myndir og kortlagt plánetuna síðan árið 1996, hafa mistekist og óttast vísindamenn að skipið sé þeim að eilífu glatað.

Hins vegar hafa vísindamenn Geimstofnunar Evrópu lofað að nota geimfar sitt, Mars Express, til að fylgja eftir rannsóknum NASA - enda er um að ræða verkefni sem hefur vakið mikla athygli um heim allan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×