Bandaríkin svíki ekki eigin grunngildi 12. desember 2006 00:15 Annan flytur ræðu sína í Truman-safninu í Missouri í gær. MYND/AP
Í kveðjuávarpi sínu sem framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir Kofi Annan ríkisstjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta harkalega og varar við því að Bandaríkjamenn megi ekki fórna lýðræðisgildum sínum í stríði sínu gegn hryðjuverkum. Annan flutti ræðuna í minningarsafni um Harry S. Truman, sem var forseti Bandaríkjanna á fimmta áratugnum, í Independence í Missouri í Bandaríkjunum í gær. „Mannréttindi og réttarríki eru lykilatriði fyrir öryggi og velferð í heiminum,“ sagði Annan, samkvæmt ræðutexta sem AP-fréttastofan fékk í hendur áður en ræðan var flutt. Þegar Bandaríkin „virðast yfirgefa eigin gildi og markmið eru vinir þeirra í öðrum löndum skiljanlega undrandi og ráðvilltir,“ sagði Annan. Annan lætur af embætti framkvæmdastjóra SÞ um áramótin, eftir tíu ára feril í þessu áhrifamikla starfi. Allt frá því Bandaríkjamenn og Bretar ákváðu að ráðast inn í Írak árið 2003 án þess að hafa til þess ótvírætt umboð öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna hefur Annan verið meðal helstu gagnrýnenda Íraksstríðsins, en mjög hefur borið á þessari gagnrýni hans nú undir lok embættistíðar hans. Annan segir Bandaríkjamenn hafa sérstöku ábyrgðarhlutverki að gegna í alþjóðamálum vegna þeirra óhemju miklu valda sem þau ráða yfir sem eina risaveldi heimsbyggðarinnar. Annan dró saman fimm meginhugmyndir sem hann álítur nauðsynlegt að virða í siðmenntuðum heimi: sameiginleg ábyrgð, alþjóðleg samstaða, réttarríki, gagnkvæmt traust og fjölþjóðleg nálgun að lausn deilumála. Annan kaus að flytja lokaræðu sína í Truman-safninu að hluta til vegna þess að það er tileinkað Bandaríkjaforseta sem átti mikinn þátt í stofnun Sameinuðu þjóðanna. Í ræðunni er ítrekað borið lof á Truman en Bush er hvergi nefndur á nafn. Annan hvatti líka til þess að öryggisráðið verði endurskipulagt. Rétt væri að fjölga fastafulltrúum í því til að raddir heimshluta heyrðust, sem þar hafa haft lítið að segja til þessa enda endurspeglaði núverandi skipulag heiminn eins og hann var árið 1945. Hann brýndi líka núverandi fastafulltrúa-veldin fimm, sem hafa neitunarvald í ráðinu, til að „standa undir þeirri sérstöku ábyrgð sem fylgir forréttindum þeirra“.
Mest lesið Gabríel og Anton Boama réðust á tvær konur og Anton stakk pilt Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Innlent Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Innlent Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Erlent Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Innlent Fleiri fréttir Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Sjá meira