Erlent

Hinn fullkomni er læknir með góðan húmor

Hin fullkomna kona er mjúkholda hjúkrunarfræðingur frá Sheffield, en hinn fullkomni karlkyns félagi væri læknir frá Newcastle með ríkulegt skopskyn og smekk fyrir kasmírpeysum. Þetta er niðurstaða könnunar sem Grazia-tímaritið breska gerði um hinn fullkomna félaga.

Samkvæmt könnuninni laðast karlar síður að horrenglum og vilja helst að konur hafi brúna síða lokka. Þær eiga að brosa vingjarnlega og hafa áhuga á eldamennsku.

Meðan rúmum helmingi kvenna stendur á sama um fyrri kynlífsreynslu karlsins telja 97 prósent kvenna að börn karla frá fyrra hjónabandi séu fráhrindandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×