Erlent

Helförin var rædd í ríki klerkanna

Íranski utanríkisráðherrann Manouchehr Mottaki talar í Teheran í gær.
Íranski utanríkisráðherrann Manouchehr Mottaki talar í Teheran í gær. MYND/AP

Umdeild ráðstefna um helförina gegn gyðingum var opnuð í Teheran í gær. Utanríkisráðherrann Manouchehr Mottaki sagði í opnunarávarpi að tilgangurinn væri „hvorki að afneita né sanna að helförin hafi átt sér stað“, en frumkvæðið að boðun hennar átti Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti, sem hefur sagt helförina vera „goðsögn“ og að þurrka bæri Ísrael af landakortinu.

Að sögn talsmanna alþjóðamálastofnunar íranska utanríkisráðuneytisins mættu 67 erlendir vísindamenn frá þrjátíu löndum á ráðstefnuna. Á henni gæfist tækifæri til að ræða þetta mál í andrúmslofti sem væri laust við „tabú Vesturlandabúa“.

Stjórnvöld í Þýskalandi, Bandaríkjunum og fleiri vestrænum ríkjum fordæmdu tiltækið. Ísraelski forsætisráðherrann Ehud Olmert kallaði ráðstefnuna „sjúkt fyrirbæri“.

Sá fáheyrði atburður átti sér annars stað í Teheran-háskóla í gær, að hópur námsmanna hafði uppi hávær mótmæli gegn Ahmadinejad forseta er til stóð að hann héldi þar ræðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×