Pyntingar ennþá algengar 4. desember 2005 04:00 Manfred Nowak. Barsmíðar með hnefum eða kylfum, jafnvel rafmagnskylfum, eru algengustu pyntingaraðferðirnar í Kína.
Pyntingar eru ennþá algengar í kínverskum fangelsum enda þótt ríkisstjórn landsins segist vinna að því hörðum höndum að uppræta slíkt ofbeldi. Þetta er niðurstaða erindreka Sameinuðu þjóðanna sem kannaði ástandið og ræddi við fanga. Manfred Nowak, erindreki SÞ, ferðaðist um Kína í síðasta mánuði og fékk þá einstakt tækifæri til að ræða við fanga og embættismenn um þessi mál. Hann sagði við kynningu á niðurstöðum sínum í gær að þótt kínversk stjórnvöld hefðu gert ýmislegt jákvætt á síðustu árum til að koma í veg fyrir misþyrmingar í fangelsum sínum væru pyntingar enn algengar. Ofbeldi virðist einkum beitt á kerfisbundinn hátt gegn tíbeskum föngum en einnig fá meðlimir í samtökum Falun Gong sinn skerf. Pyntingum er beitt til að ná fram játningum en einnig í refsingar- og "endurhæfingarskyni". He Depu lýðræðisumbótasinni var til dæmis neyddur til að liggja kyrr á rúmi í köldu herbergi í fangelsi sínu í 85 daga. Barsmíðar með rafmagnskylfum og langvarandi vökur eru á meðal þess fangarnir eru látnir sæta. Kínversk stjórnvöld segja að sú staðreynd að þau hafi heimilað heimsóknina sýni að þeim sé alvara með að uppræta þennan ófögnuð.
Erlent Mest lesið Heimurinn undrist villimennsku Íslendinga Innlent „Ég vil fá að ráða hvar ég slátra og hverja ég er í viðskiptum við“ Innlent Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Erlent Ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán Innlent Inga endurvekur 25 metra regluna Innlent Ákærðar tveimur árum eftir tunnumótmælin Innlent Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Innlent Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Erlent Forsætisráðherra skynjar óöryggi meðal fólks Innlent Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Innlent Fleiri fréttir Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Svíar leigja fangelsispláss í Eistlandi Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Rýming í Köln vegna þriggja sprengja frá seinni heimsstyrjöldinni Aftur hafin leit að Madeleine McCann Andstæðingi forsetans brottrekna spáð sigri í forsetakosningum Brúnni milli Rússlands og Krímskaga lokað eftir sprengingar Forsætisráðherra Hollands segir af sér Fjórir ákærðir í tengslum við morðið á C.Gambino Mun þingið fara fram hjá Trump? Víðir segist hafa tekið sjálfstæða ákvörðun í máli Oscars Yfirmaður FEMA sagðist ekki vita af tilvist fellibyljatímabila Leggur fram vantrauststillögu á eigin ríkisstjórn Parks & Rec leikari skotinn af nágranna sínum Frakklandsforseti heimsækir Grænland Wilders slítur ríkisstjórnarsamstarfinu Með sömu óásættanlegu kröfurnar Saka Ísraelsher aftur um að hafa skotið á hóp sem beið eftir hjálpargögnum Skipulagði árásina í Colorado í heilt ár Skyndikosningar framundan í Suður-Kóreu Engin tímamótaskref tekin á fundi Rússa og Úkraínumanna Nýkjörinn forseti Póllands: Trúrækinn sagnfræðingur og fyrrverandi hnefaleikakappi Sérfræðingar ESB gagnrýna áform þess um að útvatna loftslagsmarkmið Niðurstaðan setji áform ríkisstjórnarinnar í uppnám Skjöl staðfesta að Tice var í haldi Assad-liða Vilja ganga á milli bols og höfuðs á geimrannsóknum í Bandaríkjunum Vill sameina þjóðina um hernaðaruppbyggingu Koma aftur saman eftir sögulegar árásir í Rússlandi Vopnaður heimagerðum eldvörpum Sjá meira