Nær öruggt talið að Abbas sigri 8. janúar 2005 00:01
Forsetakosningar fara fram í Palestínu í dag. Sjö manns eru í framboði en nær öruggt er talið að Mahmoud Abbas beri sigur úr býtum og taki þar með við af Jasser Arafat sem lést í nóvember. Abbas er frambjóðandi Fatah, stærstu fylkingarinnar innan Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO). Hamas-samtökin ætla að sniðganga kosningarnar. Mustafa Barghouti er sá sem helst er talinn geta velgt Abbas undir uggum. Mustafa er skyldur uppreisnarleiðtoganum Marwans Barghouti sem situr í fangelsi fyrir hryðjuverk. Hinir fimm frambjóðendurnir eru taldir hafa litla möguleika á sigri. Alls hafa 1,8 milljónir Palestínumanna kosningarétt en ríflega milljón manns hafa skráð sig til þátttöku. Þrjú þúsund kjörstaðir eru í landinu og verður þeim lokað klukkan fimm síðdegis. Um klukkustund síðar verða birtar útgönguspár. Ísraelsk stjórnvöld hótuðu í gær að standa ekki við áður gefið loforð sitt um aukið ferðafrelsi fyrir fólk á Vesturbakkanum og Gaza sem þarf að komast á kjörstað. Ísraelar hótuðu þessu eftir að palestínskur uppreisnarmaður skaut ísraelskan hermann til bana. Töluverð ólga var í Palestínu í gær og var palestínskur lögreglumaður meðal annars skotinn til bana af ísraelskum hermanni við landamæri Ísraels. Ísraelsk stjórnvöld segja að maðurinn hafi verið kominn inn á öryggissvæði vopnaður riffli og þess vegna hafi hann verið skotinn. Abbas sagði í gær að ef hann yrði kjörinn forseti myndi hann óska eftir því að Ahmed Qurei, forsætisráðherra Palestínu, myndaði nýja stjórn. Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstri grænna og BSRB, er staddur í Palestínu.
Erlent Fréttir Mest lesið Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Innlent Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Innlent Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Erlent Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Innlent Búið að boða til nýs fundar Innlent Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Innlent Sósíalistum bolað úr Bolholti Innlent Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Erlent Sambýliskonan sem sá allt og bróðirinn sem þekkti ekki fjölskylduna Innlent Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Innlent Fleiri fréttir Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Tveir ferðamenn létust í fílaárás í Sambíu Stunguárás í Tampere hvorki talin hryðjuverk né rasísk árás Sænskur glæpaforingi tekinn fastur í Tyrklandi Leiðtogar Hamas sagðir þokast nær því að samþykkja vopnahlé Vilja nýta formennskuna til að láta sverfa til stáls gegn Ungverjum Tugir slasaðir eftir sprengingu á bensínstöð í Róm Hæstiréttur opnar á brottflutning til þriðja ríkis Engin árangur af símtalinu og fjórtán látnir eftir árás á Kænugarð Stóra og fallega frumvarpið verður að lögum Voru á há-áhættu lista BBC fyrir Glastonbury Fjöldi flugferða felldur niður vegna verkfalls franskra flugumferðarstjóra Danskur covid-samsærissinni bendlaður við rússneskan upplýsingahernað Trúarhópar mótmæla Zúmba-kennslu á Indlandi Stjórnlaus gróðureldur ógnar heimilum á Krít „Stóra og fallega frumvarpið“ enn í limbó á þinginu Combs áfram í gæsluvarðhaldi Sautján ára drengur drukknaði á Hróarskeldu Játar að hafa myrt fjórmenningana í Idaho Jimmy Swaggart allur Evrópuríkjum leyft að nota kolefnisjöfnun erlendis í fyrsta skipti Diddy sakfelldur í tveimur af fimm ákæruliðum Boðar arftaka Dalai Lama Paramount lúffar fyrir Trump og greiðir bætur vegna Kamölu Táningsstúlkan sem lést var að teyma íslenskan hest Maðurinn sem fann upp mew-ið er látinn Handtóku stjórnendur sjúkrahússins vegna ætlaðra barnsdrápa Trans konur fá ekki að keppa og Thomas svipt metunum Sjá meira