Erlent

Vinnur skýrslu um ástandið í Írak

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur skipað fyrrverandi hershöfðingja í Bandaríkjaher til að taka hersveitir í Írak, fjölda þeirra og þjálfun írakskra sveita til nákvæmrar skoðunar. Þetta er gert í kjölfar gagnrýni þess efnis að of fáar hersveitir séu í landinu og þær séu illa búnar til að takast á við uppreisnarmenn og skæruliða, sem virðist vaxa ásmegin. Gary Luck hershöfðingi var áður yfirmaður bandaríska heraflans í Suður Kóreu og ráðgjafi herforingjaráðsins. Hann á að skila Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra skýrslu um ástandið hið fyrsta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×