Erlent

Lík 16 hermanna fundin

Alls hafa lík 16 hermanna, sem voru í bandarísku herþyrlunni sem hrapaði í austurhluta Afganistans í fyrradag, fundist að því er háttsettur bandarískur hershöfðingi skýrði frá í gærkvöld. Talið er líklegt að þyrlan, sem var af gerðinni Chinook 47, hafi verið skotin niður og hafa uppreisnarmenn úr röðum talíbana fullyrt að þeir hafi grandað þyrlunni. Hermennirnir um borð voru á leið til bardaga við liðsmenn hryðjuverkasamtakanna al-Qaida er þyrlan hrapaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×