Norskir kjósendur snúast til hægri 8. september 2005 00:01
Niðurstöður nýrra fylgiskannana í Noregi benda til þess að borgaraflokkarnir haldi meirihluta á norska þinginu. Mestu munar um að Vinstriflokkurinn, lítill frjálslyndur hægriflokkur, nær fjögurra prósenta markinu í tveimur nýjum könnunum og fengi allt að tíu þingsæti í stað tveggja. Þá er Framfaraflokkurinn, með Carl. I. Hagen í broddi fylkingar, með um 20 prósenta fylgi í báðum könnununum. Að sama skapi tapar Sósíalíski vinstriflokkurinn umtalsverðu fylgi samkvæmt könnun sem fyrirtækið Sentrio gerði fyrir nokkur norsk dagblöð eða heilum sjö prósentustigum miðað við síðustu könnun þess. Rauðgræna bandalagið svonefnda, sem myndað er af Verkamannaflokknum, Sósíalíska vinstriflokknum og Miðflokknum, fer talsvert niður fyrir 50 prósenta markið í báðum könnununum, en fylgi þeirra hefur samanlagt verið talsvert yfir 50 prósenta markinu um langt skeið. Samanlagt fylgi þeirra er 44,7 prósent í könnun Sentrio en 47,7 prósent í könnun Gallup. Þessar niðurstöður benda til þess að borgaraflokkarnir haldi meirihluta þingsæta í kosningunum á mánudag og er þetta í fyrsta skipti um í tvö ár sem kannanir sýna meirihlutafylgi þeirra. "Sósíalíski vinstriflokkurinn veit ekkert í hvorn fótinn hann á að stíga, hvort hann eigi að vera róttækur flokkur eða miða kosningabaráttuna við að komast í ríkisstjórn," segir Anders Todal Jensen, en hann er sérfróður um kosningar. Hann telur að vaxandi spenna síðustu dagana fyrir kosningar komi Verkamannaflokknum og Framafaraflokknum til góða en tæplega Sósíalíska vinstriflokknum sem Anders Todal telur að hafi spillt möguleikum sínum. Hann bendir jafnframt á að liðsöfnun og baráttuaðferðir Vinstrifllokksins undanfarið hafi skilað góðum árangri. "Þegar flokkurinn nær fjögurra prósenta markinu breytist öll myndin og mörg þingsæti flytjast frá vinstri til hægri," segir Anderes Todal Jensson í samtali við Aftenposten.
Erlent Fréttir Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Byrjað að smella af með stærstu myndavél í heimi Meira örplast í flöskum úr gleri en plasti Hífðu lystisnekkjuna sem sökk upp úr sjónum við Sikiley Sjá meira