Erlent

Spilling í Úkraínu

Tveir hátt settir menn innan ríkisstjórnar Úkraínu hafa sagt störfum sínum lausum. Yfirmaður öryggismála í Úkraínu bauðst í gærkvöldi til að hætta, í kjölfar ásakana um spillingu. Í morgun hætti svo aðstoðarráðherra mannréttindamála í landinu, þar sem hann sagðist ekki vilja starfa í stjórn þar sem spiling viðgengist. Búist er við að Viktor Júsjenkó, forseti landsins, haldi blaðamannafund síðar í dag vegna málsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×