300 lík fundin á hamfarasvæðunum 9. september 2005 00:01
Þrjú hundruð lík hafa nú fundist á hamfarasvæðunum í suðurríkjum Bandaríkjanna. Þangað hafa verið sendir tuttugu og fimm þúsund líkpokar. Þeir sem enn halda til í New Orleans eru nú þvingaðir á brott. Lögreglu- og björgunarsveitarmenn eru nú að mestu búnir að kemba New Orleans í leit sinni að fólki sem vildi komast burt og snúa sér nú að þeim sem vilja ekki fara. Talið er að það séu um tíu þúsund manns sem flutt verða á brott með góðu eða illu. Víðtæk leit að líkum hófst í gær og hafa tuttugu og fimm þúsund líkpokar verið sendir til borgarinnar. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi einróma fimmtíu og tveggja milljarða dollara aukafjárveitingu vegna hamfaranna og Bush forseti skrifaði undir það í hvelli en hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir léleg og hæg viðbrögð stjórnvalda. Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, bætist í kvöld í hóp gagnrýnendanna. Powell var talinn líklegur stjórnandi samhæfðra aðgerða yfirvalda en í viðtali sem birt verður í kvöld á sjónvarpsstöðinni ABC segir hann að víðtæk mistök hafi verið gerð á öllum stjórnvaldsstigum. Viðvaranir hafi verið margar og komið tímanlega en lítið sem ekkert hafi verið gert. Hann tók hins vegar ekki undir fullyrðingar margra samfélags- og stjórnmálaleiðtoga sem hafa lýst þeirri skoðun sinni að kynþáttur fjölmargra íbúa sem urðu fyrir barðinu á Katrínu hafi skipt máli. Meirihluti þeirra sem verst urðu úti eru fátækir og svartir og því hefur víða verið haldið fram að það sé ástæða þess hversu illa og hægt hafi verið brugðist við.
Erlent Fréttir Mest lesið Agnes Johansen er látin Innlent Mikill viðbúnaður vegna sjóslyss við Ísafjarðardjúp Innlent Reyndi að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi Innlent Brúin komin upp við Dugguvog Innlent Vilja fá að hafa áhrif á nærumhverfið og segja „ekki fleiri kassa“ Innlent „Af einhverjum ástæðum er það ávallt Degi B. Eggertssyni að kenna“ Innlent Reyna sáttaleið eftir að aðalfundi MÍR var aftur hleypt upp Innlent Umfangsmikil leit þyrlusveitar og björgunarsveita að fiskibát í nótt Innlent Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Erlent Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Erlent Fleiri fréttir Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum gegn Ísrael Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Suðureyjargöng náðu ekki í gegnum Lögþingið Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa „Frábært“ símtal en án niðurstöðu Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Banna „óæskilega“ starfsemi Amnesty International í Rússlandi Stefnir í baráttu á milli frjálslyndis og íhalds í Póllandi Árangur í viðræðum Bretlands við Evrópusambandið Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að hleypa hjálpargögnum á Gasa Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Nicusor Dan nýr forseti Rúmeníu Trump sorgmæddur yfir greiningu Biden Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum Sjá meira