Erlent

Talabani til Washington

George Bush Bandaríkjaforseti tekur í næstu viku á móti Jalal Talabani, forseta Íraks, í Washington þar sem þeir munu ræða stöðu nýrrar stjórnarskrár í Írak og stríðið gegn hryðjuverkum. Nokkur styrr hefur staðið um íröksku stjórnarskrána sem samþykkt var á írakska þinginu síðasta mánuði og hafa súnnítar heitið því að vinna gegn því að hún verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu 15. október. Átökin hafa þó ekki aðeins verið á sviði stjórnmálanna því fjöldi fólks hefur fallið í átökum síðustu vikna í Írak.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×