Skelfilegt ástand í New Orleans 31. ágúst 2005 00:01
Vatnið vex í New Orleans. Borgin er á kafi, þúsundir íbúa eru bjargarlausar í því sem eftir stendur af heimilum þeirra og tugir þúsunda eru í raun flóttamenn, eiga ekki lengur þak yfir höfuðið. Ástandið í New Orleans er skelfilegt þessa stundina, allt á floti. Varnarveggir við Pontchartain-vatn hafa gefið sig og vatnið streymir inn í borgina, sem stendur lægra en yfirborð vatnsins. Áttatíu prósent borgarinnar eru á floti í vatni sem er allt að sex metra djúpt. Óttast er að meirihluti allra bygginga sé meira og minna ónýtur. Fólk hefst við á þökum heimila sinna og bíður björgunar og á meðan það er forgangsatriði er ekki hægt að sinna líkum sem fljóta um. Í flóðavatnið blandast að auki eiturefni frá verksmiðjum og skólp, svo að sérfræðingar segja hálfgerða eiturefnarotþró að myndast í borginni. Það var heldur ekki fögur mynd sem máluð var síðdegis. Kathleen Blanco, ríkisstjóri í Louisiana segir ástandið fara hríðversnandi. Stór skörð séu komin í varnargarða, líklega um þrjátíu metra djúp og það sé hrein martröð að ætla að þétta garðana. Þjóðavarðlið og fleiri hafi hafi reynt að endurbyggja garðana með því kasta sandpokum í þá en það sé eins og pokunum sé kastað í svarthol. Ray Nagin, borgarstjóri í New Orleans segir að það geti liðið allt að 12 til 16 vikur áður en íbúar geti snúið til baka. Nagin segir ennfremur að lík fljóti um allt, með tilheyrandi sjúkdómahættu. Og svo virðist sem þetta ástand laði ekki endilega fram það besta og göfugasta í borgarbúum, eins og þessar myndir sýna, því margir hafa farið um ránshendi, eldar loga á nokkrum stöðum og fréttamenn tala um stríðsástand.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira