Erlent

Mæðgur létust í sprengingu

Mæðgur létust og fjórir slösuðust þegar sprengja sprakk í ruslatunnu í úthverfi Istanbul, höfuðborgar Tyrklands, í nótt. Mæðgurnar voru á leiðinni í bíl sinn eftir brúðkaupsveislu þegar sprengjan sprakk. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni en grunur leikur á að aðskilnaðarsamtök Kúrda beri ábyrgð á henni. Aðeins tveir dagar eru síðan níu manns slösuðust í tveim sprengingum í annarri borg í Tyrklandi en þá hafði sprengjunum líka verið komið fyrir í ruslatunnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×