Erlent

Gaza: 200 mótmælendur handteknir

Meira en tvö hundruð mótmælendur voru handteknir á Gaza-ströndinni í nótt fyrir að fara fram hjá girðingum öryggissveita. Um tíu þúsund mótmælendur höfðu safnast saman í borginni Ofakim í suðurhluta Ísraels en þeir hættu við mótmælagöngu snemma í morgun eftir að öryggissveitir lokuðu leiðinni sem þeir ætluðu að fara. Mótmælum vegna brottfluttnings Ísraela er þó engan veginn lokið heldur ætla mótmælendur bara að leggjast undir feld og skipuleggja næsta áhlaup. Ætlun þeirra er að komast inn á svæðin, þaðan sem brottfluttningurinn á að hefjast sautjánda ágúst, og koma í veg fyrir hann, a.m.k. valda verulegum töfum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×