Erlent

Enn flóð í Kína

Enn flæða ár yfir bakka sína í Kína. Fjórir létust í miklum flóðum í gær og hundruð eru heimilislaus. Fimm er enn saknað eftir aurskriður og flóð auk þess sem þrettán hundruð þorpsbúar í Luding-sýslu í Sichuan eru algerlega einangraðir, án matar, drykkjar eða vegasambands. Tíu stíflur og brýr eyðilögðust og er tjónið metið á að minnsta kosti 250 milljónir króna. Yfir fimm hundruð manns létust í flóðum í Kína í júnímánuði. Austanverð Ástralía hefur einnig orðið illa úti í flóðum undanfarið. Staðfest er að einn er látinn og ungs pars er saknað eftir að flóð hreif bíl þeirra með sér. Uppskera á svæðinu er einnig að miklu leyti ónýt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×